Thursday, November 11, 2010

Halló Halló

Jæja ég get ekki sagt að ég sé sú duglegasta að henda inn færslur en þær koma hægt en örugglega :)
Síðustu vikur er bara aðallega búið að ganga út á skólann og halloween og svoleiðis sprell.
Sem sagt helgina fyrir Halloween fór ég, Carol og Sarah, sem sagt mamman og elsta systirin, í hús sem heitir Ronald Mcdonald house sem er fyrir krabbameinssjúk börn en þar voum við að gefa nammi fyrir Halloween sem var bara mjög gaman. Til að komast þangað keyrðum við lengst inn í borgina, sem kom mér á óvart hvað hún var ekki eins stór og ég hélt, og sátum þarna á meðan börnin löbbuðu á milli að sníkja nammi og hlustuðum á Justin Bieber, ekki mitt val by the way. Svo var bara skóli þá vikuna, ekkert sértakt en helgina eftir það var stóra helgin, HALLOWEEN. Við byrjuðum helgina á laugardeginum þegar ég og tvíburnarnir fórum í partý til vin þeirra, eina sem við gerðum nú samt var að sitja um varðeldinn og tala saman við vini hans og vinkonur. En það var rosalega kósý, boðuðum gúmmí og smors sem er kexsamloka með sykurpúða og súkkulaði á milli, rosa gott. Síðan tók raunverulegi dagurinn við, á sunnudeginum skárum við út í grasker og Sarah skreytti hurðina og svo um kvöldið stóðum við í dyrunum að gefa út nammi, og borða það sjálfar líka :)

Seinustu helgi fórum við svo til Omaha, Nebraska í rosa fínan dýragarð. Þar sáum við öll dýr sem þið getið hugsað ykkur um. Við lögðum af stað ótrúlega snemma og keyrðum tæknilega í gegnum 4 ríki, sem tók samt ekki nema 3 tíma. Við fórum í gengum- Kansas, Missouri, Iowa og Nebraska. Svo eyddum við deginum að labba um í hausveðrinu og keyra svo til baka.

Þessi vika er bara búin að vera eins og hinar vikurnar - læra helling. Ég reyni að standa mig vel í skólanum, því hérna er ætlast til að fá mjög, mjög góðar einkunnir þannig ég læri heima á hverjum degi og fá helst hærra en 9 í öllum prófum, sem gengur oftast.

En ég skrifa vonandi fljótlega aftur :)





Friday, October 22, 2010

long time no see

Hellú,
já það er kannski soldið langur tími síðan ég skrifaði eitthvað seinast en...

Síðasti mánuður er búin að vera voða skemmtilegur og búinn að líða alveg ótrúlega hratt. Aðallega búið að vera bara skóli og læra heim en mér gengur bara mjög vel í skólanum, stundum líður eins og ég sé í MR eða eitthvað við tökum svo mikið af prófum í hverri viku en ég vona ég geti bara notað það og lært betur á næsta ári.
En í seinustu viku var frí á föstudaginn og þá helgi fórum við í bíó og heim til vin stelpnanna og þar hengum við um kvöldið, ekkert sértakt gerðist þar en bara voða kósý helgi. Svo var þessi vika voða næs þar sem við fengum frí fim og fös þannig það er extra löng helgi núna. Í gær fórum við í college visit til Manhattan, kansas sem er 2,5 tíma frá kansas City og skoðuðum skólann sem er ekkert smá flottur. Við skoðuðum húsið þar sem textíl og hönnurnar og sauma deildin er og það var rosalega flott. Eftir það fórum við í skoðunartúr með nemenda um svæðið sem er alveg rosalega stórt. 23.000 nemendur sem læra í skólanum og allir búa annað hvort á heimavist hjá skólanum eða í húsum í kring og það er sérhús fyrir hverja deild og stutt að labba á milli húsanna og svo er stórt hús í miðjunni með fullt af veitingastöðum og verlsunum. Ég varð soldið öfundsjúk að sjá hvar stelpurnar verða á næsta ári, en það er bara alltígúddí, ég kem heim í MH :D

En helgin er annars bara róleg- á sun förum við að gefa veikum börnum nammi í tilefni halloween og svo bara læra fyrir skólann og svoleiðis :)

Annars man ég ekkert sérstakt sem gerðist síðustu vikur, ég reyni að vera duglegri að setja inn nokkrar línur :D

síja

Thursday, September 23, 2010

Nothing

Hæhæ,

Þetta verður ekkert rosalega vel skrifað blogg þar sem ég var að byrja skrifa mína fyrstu ritgerð á ensku, og er alveg útbrunnin á skriftum en hérna kemur það....

Það er ekkert rosalegt í gangi en ég fór í útilegu fyrir nokkrum helgum síðan sem var mjög gaman. Ég hitti Danska og norska krakka sem var æði, mér leið eins og skrefi nær íslandi að tala við þau. Í útilegunni var aðallega bara verið að leyfa krökkunum að hittast aftur síðan í Houston en ég hafði ekki hitt nein af þeim nema þeim 4 sem ég kom með. Við spiluðum körfubolta, fórum í allskonar hópleiki sem voru voða vandræðalegir. Við grilluðum sykurpúða og settum á þá súkkulaði og settum kex ofan og undir, alveg ágætt. Við fengum svo leiðbeiningar um að gera leikrit ( alveg eins og við gerðum heima á námskeiðinu ) sem voru flest rosalega fyndin þar sem lang flestir tala með mjög hörðum evrópskum hreim og voru að leika ameríkana. Sértaklega frakkinn í hópnum mínum sem var að leika prest, þið verðið bara að ímynda ykkur þetta.
En þetta er kannski ekki það merkilegast í heimi.
Ég er bara áfram búin að fara í skólann og læra heima. Ég er að sauma rosa flotta tösku í saumatíma sem ég hlakka til að gera stærri útgáfu af seinna þegar ég kem til baka, og núna næst gerum við púða úr borðum og svo förum við að gera föt.

Alltaf þegar fólk kemst að því hvaðan ég kem það fyrsta sem það segir er ,, Talið þið Ensku?" svo spyr það hvað er móðurmálið og finnst það rosalega merkilegt svo vill það endilega segja mér að þau hafa lært í skólanum að ísland er grænt og grænland er allt ís. Sem mér finnst frábært, þau vita þó eitthverja sanna staðreynd.

En Bærinn er voða fínn ég er búin að læra ýmislegt um hann. Einu sinni bjuggu Indjánar út um allt í kansas, og lang flestir bæirnir heita indjána nöfnum eins og okkar hverfi - Olathe. Það eru allskonar lög eins og það er bannað að hafa þvottasnúrur út í garði þar sem það er fundist ljótt. Það eru engir strætóar, nema skólastrætóarnir þannig allir eiga bíla, líka 16 ára börnin. Það eru engin stór auglýsingaskilti því það er bannað og öll merki verða að vera af ákveðinni hönnun.

En ég hef ekkert meira að segja, Fyrirgefið hvað þetta var ekkert merkilegt en ég skal reyna að skrifa eins fljótt og eitthvað merkilegt gerist
Síja og sakna ykkar
Helga

Wednesday, September 8, 2010

Blesa :)

ég veit að það er stutt síðan að ég skrifaði hér seinast en það var gert í svo miklu flýti að ég örugglega gleymdi ýmsu svo hér kemur smá framhald: ;)

En hérna í Olathe-Overland park er æði, það er búið að vera sól og hiti alveg síðan ég kom fyrir utan þegar það kom einu sinni elding, sem ég sá ekki einu sinni þó að við vorum úti að labba. En mér semur alveg ótrúlega vel við fjölskylduna og byrjuð að kynnast nokkrum í skólanum þó að ég hafi tæknilega séð ekki verið nema 3 daga í skólanum. Ég er í mjög skemmtilegum og fjölbreyttum tímum og meðal annars hef ég þessa vikuna umsjá með Snák í náttúrufræði tíma sem er ógeðslegt, ég er búin að halda á honum einu sinni en í næstu viku er það kanína og svo skjaldbaka eða rotta. Ég er búin að fara einu sinni í mollið og kaupa smá föt en annars þarf aðallega að kaupa eitthvað í kringum skólann.

Um helgina er skiptinema útilega sem ég fer og Jenny sem er ein af host-systrum mínum en þar hittum við olathe-krakkana en ég hef bara hitt einn af 4 öðrum skipinemunum í skólanum en hann er með mér í náttúrufræði tímanum en svo eru 4 eða fl. aðrir High school hérna á svæðinu þannig þetta ættu að vera um 20 krakkar eða svo.

En skrifa seinna, ég sakna ykkar allra rosa mikið :)
Helga

Houston, Texas

Sunday, September 5, 2010

Jæja þá er ég komin á leiðarenda í bili en ég fór út á mánudaginn með Írisi og Torfey og við fórum til Boston og þegar við vorum lentar í Boston fórum við í rútu í næsta terminal og þar fór ég ein og beið í 5 kl. en það var bara ágætt, las blöð og Jane Eyre og drakk Starbucks og dundaði mér bara. En þaðan fór ég til North-Carolina og leið og ég kom út var akkúrat verið að kalla í næstu flugvél og áfram hélt ég til Houston. Þar fann ég engann frá Afs fyrst og sat bara og beið, þá kom eitthver gæji hlaupandi; found you! og þá hafði ég labbað framhjá þeim seim komu að sækja mig. Ég fór svo á hótelið og deildi herbergi með 3 stelpum frá Hong kong.

Daginn eftir var morgunmatur sem bara bara ágætur og smá námskeið en eftir það fórum við að skoða Nasa í Houston sem stjórnar öllum ferðunum í geiminn og sáum herbergið þar sem Apollo leiðangarnir voru stýrðir og allskonar dóterí. Við fórum svo í lítinn tívolí svæði þar sem við fórum í nokkur tæki og borðuðum á steikhúsi með nautahausum út um öll loft, sem var áhugavert. En Allan tímann sem ég var í Houston kom aldrei sól en var steikjandi hiti.

Svo kom að aðaldeginum, ég fór með 4 öðrum krökkum í minnstu flugvél sem ég hef á ævinni séð, hún var með einu sæti og svo gangur og hinu megin 2 sæti, en ég sat ein og það var svolítið töff að prófa að sitja svona. En þegar við vorum komin voru fullt að fólki að bíða og ég labbaði bara upp að eitthverjum sem mér leist á og þá var það bara fjölskyldan. En núna er ég byrjuð í skólanum og búin að skoða hverfið mikið og við förum stundum út að labba annað hvort með hundinn eða bara að hreyfa okkur í hitanum en mér semur mjög vel við tvíburnana og alla fjölskylduna.

Ég er í alveg ágætum tímum sumir voru skilda aðrir val:

fyrir jól:
algebra 2
american history 1
english 3
textile??- saumatími
AP europian history
naturlist - fræði um húsdýr þar sem við lærum um dýrin í umhverfinu og það eru nokkur lifandi í stofunni, skjaldbökur, kanína, mýs, rottur, refir
photografi

eftir jól:
bætist við History of film, jewlry/metal sem ég er mjög ánægð.

En þetta er voða flýtilega skrifað blogg, þannig fyrirgefði með það en ég reyni að skrifa fjótlega aftur :)

Sunday, August 29, 2010

Styttist í þetta...

Jæja, þá fer ferðalagið að bresta á, bara rétt um 15 klukkutímar í brottför og allt að verða ready.

Ég er komin með fjölskyldu sem ég hlakka alveg ótrúlega mikið til að hitta og þau allavega hljóma yndislega í e-mailinu sem ég fékk frá þeim en þetta er sem sagt hjónakornin Carol og Alan og þau eiga þrjár dætur, Sarah-24, Tvíburnarir Jennifer og Jacqueline sem eru einu ári eldri en ég. Þau búa í Overland Park, Kansas sem er alveg í miðjunni á bandaríkjunum.

Overland Park er önnur stærsta borgin í Kansas og þar búa svipað margir og í Reykjavík og á wikipedia las ég eitthvað um að þessi borg væri ein af bestu borgunum til að búa í bandaríkjunum og allskonar þannig.

Ég segi ykkur frá ferðalaginu og fyrstu dögunum eins fljótt og hægt er
en þangað til...

Helga :)
Þetta er víst gamli miðbærinn í Overland Park

Wednesday, August 11, 2010

Hello everybody!

Hæhæ,

Helga heiti ég og ætti að vera leggja af stað eftir nokkra tíma til Bandaríkjanna en ferðinni minni var frestað til 30.ágúst þar sem erfitt var að finna fjölskyldu á svæðinu þar sem ég er komin í skóla, en ég veit samt ekki ennþá hvar það er nákv. En Þó að hlutirnir æxsluðust svona verður upplifunin ekkert síðri og get ég ekki beðið eftir að fara út. Ég mun að öllum líkindum fljúga út 30. ágúst og millilenda í New York og North-Carolina og enda í Houston ef ferðin helst eins og hún átti að vera.

Annars er ég alveg ágætlega ánægð að fá aðeins minna 3 vikur auka til að dúttlast og kveðja fjölskylduna og vini og auk þess fæ ég að halda afmælið mitt hérna á klakanum ooooog fá bílpróf ;)

Later :)